Hemmahress

Góðan og blessaðann. Ekki klikkaði sundkarnivalið hjá okkur símafólki 8.maí bara snilld frá A til Ö sjórinn var æðislega kaldur og góður hehe ekki frá því að hafa fengið nett sjokk þegar ég let mig vaða útí usss eftir það var farið í Laugardalslaugina þar var aðeins hlýrra vatn í boði það var mikið fjör og mikið gaman og við söfnuðum helling af peningum fyrir sunddeild Íþróttasambands fatlaðra.
Annars er búið að vera massa mikið að gera hjá mér alla síðustu viku það er staddur útlendingur á vegum vinnunnar minnar og er hann undir minni umsjá og verður það þessa vikuna líka erum að fara uppfæra kerfið í Þ.verinu. Helgin snilld   Golf, helvítis Eurovision, kosningar, grill humar nautakjöt lambakjöt grænmetisspjót og hellingur af bjór og allskonar alkahóli hittumst nokkrir æskuvinur og eiginkonur eða þeir sem eru giftir og í sambandi. Sunnudagur nett þynnka, golf og besti hringur sem ég hef spilað svo var bara tekið nett chill. Ætlaði að henda inn helling af myndum en þær eru víst allar ónýtar og rugl útí loftið eða ekki birtingahæfar.

Sundkanival!!

Í dag ætla ég að synda til góðs. Við hjá símanum starfsmenn ætlum að synda fyrir frábæru málefni í dag til styrktar sunddeild íþróttafélags fatlaðra mér finnst þetta alveg brilliant þetta virkar þannig að það var hægt að skrá sig í hina ýmsu viðburði í laugardalslauginni og hver viðburður er með ákveðinn upphæð á bakvið sig t.d. mæta styrkti ég um 500kall fara í pottinn 1000kall rennibrautinn 1000 og svo framvegis, ég náttla skráði mig í allt sem hægt var að skrá sig í. Ég er sem sagt að fara núna kl.1330 í sjósund 5000kall þar svo þegar það er búið á er það laugardalslauginn þá er planið þannig Mæta, pottinn, gufa, Rennibrautinn, sundleikfimi, sundþjálfun, sundknattleik, boðsund og björgunarsund eftir það þá hef ég safnað tæplega 30000 kalli sem renna til  sunddeildar Íþróttasambands fatlaðra sem er besta mál og argandi snilld svo ætla ég að enda daginn á því að skella mér í golf eftir þetta góðverk með bros á vör.

Thelma Björk vekur athygli

Enn og aftur litla frænka að stimpla sig inn enda galdrakona með nál og tvinna   Wizard
mbl.is Thelma Björk vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Back from the bed.

sick 

Þá er maður loksins staðinn upp úr veikindum  hélt að það mundi aldrei enda fékk svona heiftarlega sýkingu í raddbönd missti meðal annars röddina og fleira fékk enga skýringu hvað þetta væri hjá Dr.Pervertus "hann vildi endilega skoða strákinn"  var rassamældur, ýtt í blöðruháls.þefað á milli táa nei djók eina sem hann gerði var að klóra sér í hausnum og segja drullastu heim og undir sæng og farðu að horfa á Greys Anatomy, One Tree Hill, E.R. og The O.C. sem og gerði eins horfði ég á mína menn Liverpool leggja Chelsea að velli sem var alls ekki leiðinlegt vona bara að Liverpool gefi mér góða afmælisgjöf 23.maí þegar þeir mæta AC Milan í úrslitaleiknum sem verður í Aþenu það yrði nú ekki slæm gjöf það en það kemur í ljós eftir nokkra daga. Eins veiktist Saumavélinn mín á mánudaginn (samúðarvekindi) en það voru stutt veikindi særindi í startara hún er kominn í action aftur  og slær ekki feilpúst frekar enn fyrri daginn.

Golfmótið á laugardaginn var erfitt en drullugaman, hrikalega erfitt að spila í svona miklu roki en er þokkalega sáttur við mitt spil samt endaði á 26.punktum eða 109 höggum eins var ég gríðarlega sáttur við nýja settið mitt allt að ganga upp hlakka rosalega til í sumar að fara út á völl að spila. Eins skemmdi ekki hollið sem ég var í  á laugardaginn það var hrikaleg stemming hjá okkur þrátt fyrir rok og læti úti á velli á laugardaginn mikið hlegið og grínað.


Fyrsta Golfmótið.

Fyrsta golfmót sumarsins er á laugardaginn 28.04.07 Staðsetning Leirann Keflavík Opna Carlsberg lagt af stað kl. 10:10 ekki frá því að það sé kominn smá spenningur í kallinn verður pottþétt gaman og mikið fjör er í massaholli með þvílíkum spilurum að það hálfa væri nóg. Heimamaðurinn Hilmar Örn Þórlindsson með Skymax settið sitt það verður erfitt að sigra hann enda hefur heyrst að hann hafi sofið núna síðustu dagna útí á golfvellinum í Kef stúterað allar flatir, brautarlegur, grasvöxt, fuglalíf stöðu sólar, mælt hitastig í vötnum við þær brautir sem eru á vellinum, viktað sandmagnið í glompum og mælt möndulsnúning jarðar eins ætlar kóngurinn að mæta með kylfusvein (Eggert Sæm) sem sér til þess að Skymaxkylfurnar séu hreinar og fínar enda hrikalegt sett eins á hann að naga Skyttuna á Bergvíkinni og 11.braut , heyrst hefur að Tigerinn ætli að segja upp samning við Nike og fá sér Skymax Pro Giggidy Gigg 3.74DZX settið. Eins verða Davíð Jón formaður G.L.Í.B (Gleymdi Lyklunum Í Bílnum) hann er Sauðnaut en það er önnur saga. Sigurðar Ragnar hann spilar á hraða ljósins það verður erfitt að fylgja honum en maður reynir sitt besta. Svo má ekki gleyma hollinu sem leggur af stað kl.08:20 össss þar eru 2 heiðursmenn Valsi og Pallsi þekki hina 2 sem spila með þeim ekki rass en það skiftir nú engu. Valsi er víst með sett úr gulli í boði Brimborgar sköftin eru víst með 100 hundrað demöntum hver kylfa sérinnfluttum frá Suður Afríku pokinn frá Gianni Versace með innbyggðu heimabíói 42" flatskjá ferðaklósetti gullskreytt setan auðvitað klósettpappír úr 5000þúsund köllum.  Svo Palli litli hann ætlar að reyna að lækka forgjöfina sína á þessu móti hann er með 5.760 í forgjöf og ætlar að reyna að komast niður í 5.755 og er það besta mál. 

P9020106P9020110

P9020134P9020146


Stórveldið KR Íslandsmeistarar

bilde

 Loksins Loksins stórveldið KR vaknað þvílíkur leikur í KR heimilinu í kvöld ekki hægt að segja annað sýndu þvílíkan karakter og tóku þetta á endasprettinum.

Til hamingju KR-ingar nær og fjær


mbl.is KR-ingar Íslandsmeistarar karla í körfubolta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tiger Woods falinn myndavél.

Tiger Woods með falda myndavél hrikalega fyndið myndband eins líka gaman að sjá hvað þessi golfsnillingur er með mikinn húmor. Ég verð samt að segja það að ég veit ekki hvernig maður mundi bregðast við ef svona gaur af þessu caliberi mundi labba uppað manni og fá að spila með, en læt fylgja með videóið. Argandi snilld.

 


Glenn Quagmire !!!

Glenn Quagmire algjör fagmaður

og ekki má gleyma flugstjóranum.

 

 


Litla frænka að slá í Gegn

Var að fá rosa góðar fréttir af litlu frænku minni sem er svo sannarlega að gera góða hluti í tískuheiminum. Thelma Björk er stödd í París og vinnur þar við fatahönnun búin að vera þar síðasta ár og eins eitthvað í Barcelona. Stelpan er bara á leiðinni til Japans í boði útflutningsráðs Íslands til að vera á sýningu þar í landi þetta er rosa heiður fyrir hana að komast þangað og að koma sjálfri sér og sinni vöru á framfæri eins er hún búin að selja slatta af því sem hún er að hanna sem eru höfuðskraut sem eru víst hrikalega hipp í dag, ég er ekki frá því að ég sé bara pínu montinn af litlu frænku. Eins er hægt að sjá afraksturinn í nýja British Vouge maí tímaritinu sem er komið út.

http://www.iqons.com/thelma+bjork

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband