Fór í Golf í gærkvöldi á Oddfellow vellinum í slatta af rigningu og dass af roki frekar gaman en orðið frekar þreytt að spila alltaf í svona veðri vorum allir að spila samt ótrúlega vel miðað við aðstæður.
Langþráð frí í sjónmáli kallinn að fara til Köben á morgun verð reyndar ekki nema í 4 daga en þeir verða nýttir, hlakka hrikalega mikið til að hitta dóttir mína skoða íbúðina hennar og eins ætla ég að reka inn nefið í vinnuna hjá henni. Hún er búin að panta fullt af íslensku nammi og Appelsíni SS pylsur og með læti en aðalmálið er íslenskur Piparostur eins gott að maður mæti með hann annars enginn gisting. Ætlum að skella okkur til Hróarsskeldu, út að borða og reyna að gera sem mest miðað við hvað litla skvísan talar um í símanum við pabba sinn. Svo skilst mér að við séum á leiðinni á Samsbar um helgina spurning hvort ég sé í banni þar ennþá mér var úthýst þaðan sumarið 2004 þegar ég einokaði Kareokee græjuna nettur í annari tánni ég var vinsamlega beðinn um að yfirgefa staðinn og ekki koma aftur af ungri snót sem vann þarna. Ég náttla hlýddi því eftir að við félagarnir kvittuðum fyrir okkur á staðnum eins og sannar rokkstjörnur með því að taka rokkpiss og rúst GIGG.
Svo eftir Köben þá kem ég heim í 5 daga og þá er förinni heitið til London 17.06.07 til 1.07.07 í náms og skemmtiferð á vegum símans, gisti á snilldarhóteli sem vill svo skemmtilega til að vera staðsett við hliðina á golfvelli já hvað þíðir það jú golf og aftur golf náskeiðshaldarar voru svo almennilegir þegar þeir fréttu að ég spilaði golf að þeir buðu mér að taka settið með mér, þurfti ekki að hugsa mig lengi um hvort það fengi að koma með enda lengi verið draumur að spila í englandi. Svo þegar kem heim þá er það Vestmannaeyjar og spilað á Volcano Open með tveim góðum mönnum Skyttunni og Formanninum sem verður ekki slæmt enda bara snilld að spila í eyjum og fá sér síðan hákarlastöppuborgara eftir 18.holur.
Flokkur: Bloggar | 7.6.2007 | 09:06 (breytt kl. 09:09) | Facebook
Athugasemdir
Hæbbs... Þú tekur nú nett Kareokee-djamm í Dk ég trúi nú ekki öðru...... Verður bara massa flottur á því ;) er það ekki ?? Skemmtu þér bara rosa vel (efast nú ekki um að þú gerir það) og hafðu það gott
.......... Kv Fjallgrjónið 
Fjallagrjónið ógurlega (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 09:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.